Eins og fram kom í gærkvöldi hafa leikmenn Arsenal samþykkt að taka á sig 12,5% launalækkun vegna kórónuveirunnar.
Launalækkunin gildir í eitt ár en ef að Arsenal nær sæti í Meistaradeildinni á þessu eða næsta tímabili verður launalækkunin afturkölluð og leikmenn fá 100 þúsund pund í bónus að auki.
Ef Arsenal nær sæti í Evrópudeildinni fá leikmenn 7,5% af laununum til baka.
Þrír leikmenn Arsenal ákváðu að hafna þessari beiðni félagsins en þar á meðal er Mesut Özil sem er með 350 þúsund pund í laun á viku.
Lögfræðingur Özil segir að betra væri að fresta launagreiðslum í stað þess að lækka laun þar sem að það eigi eftir að skýrast betur síðar á árinu hvernig félögin koma fjárhagslega út úr kórónuveirunni.
Özil hefur fengið gagnrýni fyrir ákvörðun sína hjá Piers Morgan, sjónvarpsmanni og stuðningsmanni Arsenal.
'Shame on you Mesut Ozil.'
— Good Morning Britain (@GMB) April 21, 2020
'This is why some players get a bad rap.'
Arsenal footballer Mesut Ozil, who earns £350,000 a week, has refused to join his teammates in taking a 12.5% pay cut. @piersmorgan | #GMB pic.twitter.com/P48IW04zWT
Athugasemdir