Tíunda árið í röð er Fótbolti.net með Draumaliðdeild í tengslum við Pepsi Max-deild karla. Sjötta árið í röð er Eyjabiti aðalstyrktaraðili deildarinnar. Draumaliðsdeildin er rekin af Fóbolta.net í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Lægra verð er á leikmönnum í ár og því auðveldara að setja saman sterkt lið. Spreyttu þig!
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Áætlað er að Pepsi Max-deildin hefjist föstudaginn 30. apríl.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Stórglæsileg verðlaun
Eyjabiti er aðalstyrktaraðili leiksins líkt og undanfarin ár. Eyjabiti er harðfiskvinnsla sem er staðsett á Grenivík.
Þjálfari stigahæsta liðsins í Draumaliðsdeildinni í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með VITA Sport sem og harðfisk frá Eyjabita.
Eyjabiti gefur einnig reglulega harðfisk fyrir stigahæstu umferðirnar í sumar. Besti harðfiskur sem völ er á!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir