HK/Víkingur og Valur áttust við í Kórnum í kvöld þar sem Valur fór með 4-0 sigur af hólmi í leik sem virtist aldrei vafi um hvort liði færi með sigur af hólmi eftir fyrsta markið.
„Ég er virkilega sátt það er alltaf erfitt að spila við HK/Víking þær eru þéttar og fastar fyrir en að vinna 4-0 hérna er bara mjög vel gert." Sagði Hallbera ánægð eftir leik
„Ég er virkilega sátt það er alltaf erfitt að spila við HK/Víking þær eru þéttar og fastar fyrir en að vinna 4-0 hérna er bara mjög vel gert." Sagði Hallbera ánægð eftir leik
Lestu um leikinn: HK/Víkingur 0 - 4 Valur
Valur átti í vandræðum með að skapa alvöru færi í fyrri hálfleik en stjórnuðu þó leiknum. Elín Metta nær svo að skora mark á lokamínútu hálfleiksins sem að hefur auðveldað Pétri hálfleiksræðuna.
„Það var mjög gott að fá þetta mark rétt fyrir hálfleik en við vorum samt með boltann meira í fyrri hálfleik en við vorum kannski ekki að skapa okkur nógu góð færi og það er alltaf pínu stress í stöðunni 0-0 en þegar markið kom fannst mér við ná betri tökum á leiknum."
Adda og Margrét Lára voru settar á bekkinn í dag og fyrir þær komu Thelma og Bergdís inn í liðið og áttu flottan leik. Mist og Guðrún Karítas komu af bekknum og þær skoruðu báðar. Þetta sýnir kannski hversu sterkur hópur Vals er í ár?
„Það eru mjög góðir leikmenn sem að þurfa að sætta sig við að sitja á bekknum en svona er þetta í góðu liði ef þú villt vera partur af góðu liði þá er samkeppni og það fylgir en þær komu sterkar í leikinn og það er lúxus að hafa svona leikmenn á bekknum."
Hallbera fékk að bera fyrirliðabandið í dag og var virkilega ánægð að fá þann heiður.
„Það er mikill heiður ég held þetta sé fyrsta sinn í Pepsí sem ég fæ að vera fyrirliði. Ég er orðin það mikil kempa það er löngu komin tími á þetta." Sagði Hallbera að lokum
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir