Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 21. maí 2021 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Hamar með öruggan sigur á heimavelli
Mynd: Aðsend
Hamar 6 - 0 KM
1-0 Íris Sverrisdóttir ('22)
2-0 Íris Sverrisdóttir ('63)
3-0 Dagný Rún Gísladóttir ('73)
4-0 Dagný Rún Gísladóttir ('75)
5-0 Dagný Rún Gísladóttir ('80)
6-0 Brynhildur Sif Viktorsdóttir ('92)

Hamar vann öruggan sigur á KM í 2. deild kvenna í kvöld en leikið var á Grýluvelli í Hveragerði.

Staðan var 1-0 í hálfleik eftir mark frá Írisi Sverrisdóttur en Hamar blés til sóknar í seinni hálfleik.

Íris gerði annað mark sitt eftir rúmlega klukkutíma leik og svo bætti fyrirliði Hamars, Dagný Rún Gísladóttir, við þremur mörkum með stuttu millibili.

Brynhildur Sif Viktorsdóttir gerði svo sjötta og síðasta markið áður en flautað var til leiksloka. Lokatölur 6-0 fyrir Hamar sem tapaði 7-0 fyrir KH í fyrsta leik. KM, sem var að spila sinn annan leik í Íslandsmóti í kvöld, er án stiga.
Athugasemdir
banner