Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fös 21. maí 2021 22:07
Hafþór Bjarki Guðmundsson
Brynjar Björn: Leikurinn var skrýtinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK tóku á móti Skagamönnum í kvöld í Kórnum og töpuðu þar með einu marki gegn þremur mörkum ÍA. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK fannst leikurinn skrýtinn.

„Mér fannst leikurinn skrýtinn. Við vorum mikið með boltann, sérstaklega í seinni hálfleik. Við fengum töluvert af færum, fleiri vissulega í fyrri hálfleik en fengum nóg af færum í seinni hálfleik til að skora mark. ÍA átti eina sókn í seinni hálfleik og fyrirgjöf og boltinn fer í markið, 2-1 og einhvern veginn verjumst við ekki nógu vel. Uppúr því var erfitt."

Lestu um leikinn: HK 1 -  3 ÍA

Hvernig var leikplan HK-inga fyrir leikinn?

„Að vinna leikinn, það var einfalt. Nýta færin,við vorum búnir að skapa töluvert af færum í síðustu leikjum og töldum okkur að mörgu leyti búnir að gera nóg til að skora fleiri mörk og gerðum það í dag líka en einhverra hluta vegna er erfitt fyrir okkur að koma boltanum yfir línuna síðustu daga. Það er ekkert annað hægt að gera en að halda áfram og reyna að spila betu rog vinna leiki."

HK er aðeins komið með 2 stig í deildinni og var Brynjar var spurður út í hvert markmið þeirra verður í deildinni í sumar. Hann segir þá verða að gera betur.

„Markmiðið er bara næsti leikur á móti KR á þriðjudag. Við þurfum ekkert að horfa lengra en það og það sem er búið er bara búið, við breytum því ekki. Þetta er staðan sem við verðum að vinna út frá og við höfum gert það áður, við höfum reynslu í því en staðan er að við verðum að gera betur í þeim leikjum sem eftir er."

Næsti leikur HK er gegn KR á Meistaravöllum á þriðjudaginn kemur. Brynjar segir HK tilbúna í slaginn.

„Já, ég gæti farið í Vesturbæinn núna bara klár þannig að það er ekkert mál."

Viðtalið í heild sinni má finna í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner