Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fös 21. maí 2021 22:14
Einar Knudsen
Gunni Einars: Ógeðslega súrt en erum engin fórnarlömb
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var margt mjög jákvætt í þessum leik en mörk breyta leikjum og þetta eru tvær aukaspyrnur og eitt fast leikatriði. Það er mjög súrt," sagði Gunnar Einarsson þjálfari Víkings Ólafsvík eftir 1 - 3 tap gegn Kórdrengjum í Lengjudeild karla í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 1 -  3 Kórdrengir

„Heilt yfir spiluðum við mjög vel og við áttum skilið meira. Við verðum að byggja ofan á þetta. Við byrjuðum ekki mótið eins og við viljum byrja það og eigum helling inni. Við verðum að horfa fram á við og ég var mjög ánægður með framlag leikmanna í leiknum. Það á að vera heilt yfir nóg til þess að vinna og fá einhverja punkta."

„Þegar 10 mínútur eru búnar af leiknum er búið að skjóta einn á móti markmanni rétt yfir, skjóta í stöngina og hann rennur með línunni og út hinum megin. Við hefðum hæglega geta verið komnir í 2-0 eða 1-0. Þetta var súrt."


Nánar er rætt við Gunna í sjónvarpinu að ofan. Þar segir hann meðal annars:

„Þetta er ógeðslega súrt en við erum engin fórnarlömb. Svona er fótboltinn og við verðum að taka það góða út úr þessum leik og sigla með það til Vestmannaeyja og mæta þeim eins og fífldjarfir og ákveðnir leikmenn sem vilja taka þrjú stig."
Athugasemdir
banner
banner
banner