„Ég held að það séu voða sáttir ef þeir tapa 4-0. Ég held að ég sé einn af þeim líka þannig jú mikið svekkelsi," voru fyrstu viðbrögð Þorvaldar Örlygssonar þjálfara Stjörnunnar sem var pirraður eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 4 - 0 Stjarnan
Stjörnumenn sáu varla til sólar í kvöld gegn Breiðabliki og var Þorvaldur spurður hvað hafi farið úrskeiðis.
„50/50 leikur fyrstu tuttugu síðan förum við að missa þá síðustu 10 til 15 í fyrri hálfleik fannst mér við missa tampinn þannig við breyttum aðeins um í hálfleik og það bara virkaði ekki því miður."
Sóknarleikur Stjörnumanna var ekki góður í kvöld og var Þorvaldur spurður út í hann.
„Eins og tölurnar segja til um þá var hún ekki nógu góð það segir sig sjálfT, 4-0 en eins og ég segi menn reyna leggja sig fram en það gékk ekki í dag og áttum erfiðan dag."
Stjörnumenn eru á botni deildarinnar með tvö stig og á liðið enþá eftir að vinna fótboltaleik á þessu tímabili.
„Verjast betur, skora mörk og reyna fá stig ég held að það liggi augum uppi en eins og staðan er í dag höldum við áfram að vinna í því og vinna saman sem hópur. Hópurinn er sterkur og góðir karakterar í honum og ég hef ekki trú á öðru en að þeir munu halda áfram að vinna í því, þetta eru miklir Stjörnumenn og hafa verið hér lengi þannig við höldum áfram."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir