Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 21. júní 2018 21:49
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Messi með flest skot á HM en ekki enn skorað
Messi átti dapran leik í kvöld
Messi átti dapran leik í kvöld
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, annar af tveimur bestu leikmönnum heims hefur ekki gert neinar gloríur á þessu heimsmeistaramóti á meðan aðal keppinautur hans, Cristiano Ronaldo er á eldi og kominn með fjögur mörk.

Messi hefur ekki enn skorað á mótinu þótt svo hann hafi svo sannarlega fengið tækifæri til þess.

Messi hefur tekið 12 skot á HM en enginn annar leikmaður hefur tekið jafn mörg skot og hann á mótinu.

Ellefu af þessum skotum Messi komu gegn Íslandi, þar á með vítaspyrnan sem Hannes Þór Halldórsson varði með glæsibrag.

Messi tók aðeins eitt skot í leiknum í kvöld og kom það ekki fyrr en á 64. mínútu.
Athugasemdir
banner
banner
banner