Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. júní 2018 07:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Mikel svarar Mourinho: Spilað í þessari stöðu í eitt og hálft ár
John Obi Mikel er alveg sama hvar hann spilar
John Obi Mikel er alveg sama hvar hann spilar
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United segir að John Obi Mikel, leikmaður Nígeríu eigi að spila dýpra á miðjunni en ekki framarlega á miðjunni líkt og hann gerði gegn Króatíu. Mikel er ekkert alltof sáttur við þessu ummæli.

Mikel lék undir stjórn Mourinho þegar þeir voru báðir hjá Chelsea þannig þeir þekkja hvorn annan vel.

„Mikel á ekki að spila í holunni fyrir aftan framherjann. Hann er djúpur miðjumaður," sagði Mourinho um sinn fyrrum lærisvein.

Mikel var ekkert alltof sáttur við þetta.

„Þetta er ótrúlegt. Ég hef spilað í þessari stöðu síðasta eitt og hálfa árið. Enginn hefur kvartað. Mér líður vel í báðum stöðum og ég geri allt sem ég get svo að liðið vinni," sagði Mikel.

Mikel hefur verið síðasta eitt og hálfa árið að spila í Kína hjá Tianjin TEDA.

Mikel verður að öllum líkindum í byrjunarliði Nígeríu gegn Íslandi á morgun.



Athugasemdir
banner
banner