fim 21. júní 2018 06:00
Elvar Geir Magnússon
Volgograd
Musa í stað Iwobi gegn Íslandi?
Icelandair
Musa gæti byrjað gegn Íslandi.
Musa gæti byrjað gegn Íslandi.
Mynd: Getty Images
Chibuike Chukwu, blaðamaður hjá Independent í Nígeríu, telur að Ahmed Musa, sóknarmaður Leicester, komi inn í byrjunarlið Nígeríu fyrir leikinn gegn Íslandi sem fram fer á morgun föstudag.

„Alex Iwobi fann sig engan veginn í 2-0 tapinu gegn Króatíu og Ahmed Musa gæti tekið hans stöðu í leiknum gegn Íslandi á föstudag," segir Chukwu.

„Nígería verður að vinna leikinn til að halda í vonina um að komast áfram upp úr riðlinum. Musa kom af bekknum í tapinu gegn Króatíu og ég tel að Gernot Rohr þjálfari muni nota hann og Victor Moses í að reyna að herja á íslenska liðið."

„Musa er gríðarlega snöggur og beinskeyttur. Hann er með eiginleika sem Rohr gæti leitað í til að reyna að framkalla mörk."

Helgi Kolviðs talar um óvissuferð
Helgi Kolviðsson, aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar, segir mikilvægt að hafa fengið vináttulandsleikinn gegn Gana fyrir HM. Ísland mætir annarri Afríkuþjóð, Nígeríu, á föstudaginn.

„Þeir (Gana) voru gríðarlega sterkir einn á móti einum og margir hverjir mjög líkamlega sterkir. Nígería er með enn meiri meðalhæð. Þeir eru miklir íþróttamenn og leita mikið að einn á móti einum. Þeir spila öðruvísi en Argentína," segir Helgi.

„Nígeríumenn töpuðu fyrsta leiknum (gegn Króatíu) og eru með þýskan þjálfara. Þeir hafa verið að gera breytingar á leikkerfinu sínu. Þeir hafa spilað með fjögurra manna, þriggja og fimm manna varnarlínur. Það er óvissa hvað þetta varðar. Þetta er úrslitaleikur hjá þeim og þeir vita það vel."

Helgi segir að erfiðara sé að lesa í taktík Nígeríu fyrir leikinn en það var að búa sig undir leikkerfi Argentínu.

„Það er erfitt að segja nákvæmlega hvernig þeir koma í þennan leik. Við vissum hvernig Argentína kæmi og gátum búið okkur vel undir það. Það er meiri óvissuferð að fara í þennan Nígeríuleik og við verðum að vera tilbúnir á leikdegi að bregðast við öllu sem gerist þegar flautað er til leiks. Við vitum um þeirra hættur," segir Helgi.

„Leikurinn gegn Gana var frábær reynsla fyrir okkur og ég held að við höfum lært mikið af þeim leik."

Sjá einnig:
Victor Moses: Erfiðara að mæta Íslandi en Argentínu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner