Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 21. júní 2019 20:30
Oddur Stefánsson
Heimild: Daily Mail 
Bellerin ofarlega á lista Atletico Madrid
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur áhuga á Hector Bellerin bakverði Arsenal í skiptum fyrir vængmanninn Vitolo.

Bellerin meiddist illa gegn Chelsea á síðasta tímabili og er talið að hann gæti misst af fyrstu leikjum tímabilsins.

Diego Simeone er þó staðráðinn í því að fá Bellerin til Spánar sem er metinn á 50 milljónir punda og á rúm fjögur ár eftir af samning sínum við Arsenal.

Atletico ætlar sér að bjóða Arsenal Vitolo sem vann Evrópudeildina í þrígang með Unai Emery þegar hann var stjóri Sevilla á Spáni.

Vitolo hefur leikið 45 leiki síðan hann gekk í raðir Atletico árið 2017 og hefur aðeins skorað fjögur mörk síðan þá.
Athugasemdir
banner
banner