Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fös 21. júní 2019 23:02
Helga Katrín Jónsdóttir
Ray Anthony: Mikilvægast að byggja upp gott lið í Grindavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miklum baráttuleik Fjölnis og Grindavíkur í Inkasso-deild kvenna lauk með markalausu jafntefli á Extra-vellinum í Grafarvogi í kvöld.

Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  0 Grindavík

Ray Anthony þjálfari Grindavíkur var nokkuð sáttur með stigið í dag
"Það voru færi báðum megin. Við hittum þó tvisvar í slánna sem var svekkjandi að skora ekki úr. En líklega bara sanngjarnt í lokin."

Hann segist nokkuð ánægður með sumarið það sem komið er "Það er stígandi í liðinu og við héldum hreinu sem var markmiðið í dag. Við eigum vonandi eftir að vaxa meira og meira í sumar."

Aðspurður hvort markmið sumarsins sé að komast upp í Pepsi-deildina hafði hann þetta að segja: "Við reynum það auðvitað en markmiðið er að byggja upp og búa til einhvern kjarna í Grindavík og byggja ofan á það."

Næsti leikur Grindavíkur er gegn ÍR 3. júlí. Það leggst ágætlega í Ray Anthony "Við spiluðum við þær í vetur og þær hafa kannski ekki sýnt sitt rétta andlit í sumar því þetta er ágætis lið. Það er sýnd veiði en ekki gefin."
Athugasemdir
banner