Augnablik og Tindastóll áttust við í Fífunni í 5. umferð Inkasso-deildar kvenna í kvöld þar sem Tindastóll tóku stigin þrjú með sér á Krókinn eftir 0-1 sigur.
Augnablik voru meira með boltann í leiknum og áttu einnig fleiri færi. Telma Ívarsdóttir markmaður og fyrirliði liðsins var svekkt að leikslokum.
„Að klára færin okkar og vanda sendingar betur á síðasta þriðjung" taldi Telma hafa vantað upp á hjá sínu liði í kvöld.
„Síðustu 20 mínúturnar í fyrrihálfleik náðum við gríðarlega góðu spili og vorum að spila þær alveg í gegn, héldum boltanum og vorum að búa okkur til svona smá hálf-færi. Svo í seinni hálfleik vorum við bara með boltann allan tímann, en þetta féll ekki með okkur í dag, því miður." sagði Telma.

Lestu um leikinn: Augnablik 0 - 1 Tindastóll
Næsti leikur Augnabliks er gegn Aftureldingu á miðvikudaginn. Það leggst bara vel í Telmu.
„Nú erum við búin að taka brekkuna niður þannig við stefnum bara upp núna."
Telma segir að þær vilji gera betur og ná í fleiri stig. „Við getum líka gert betur, við vitum það alveg, við þurfum bara eins og ég segi að klára færin okkar betur af því að við erum með allt til alls. Við erum með allar þessar ungu stelpur sem geta helling í fótbolta, það vantar eitthvað pínu upp á sem við lögum örugglega bara í vikunni" sagði Telma að lokum.
Athugasemdir