Fylkir tapaði 0-1 á heimavelli gegn Breiðablik í kvöld í annari umferð Pepsí Max-deildarinnar. Arnór Borg Guðjohnsen spilaði sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deildinni eftir að hafa komið frá Swansea í Fylki og var næstum því búinn að skora með sinni fyrstu snertingu.
„Það var góð tilfinning, gaman að fá að spila fyrsta leikinn sinn en svekkjandi að tapa þessu. Ég hélt þetta væri inni, þetta var fyrsta snertingin mín í leiknum og ég smellhitti hann svo ég hélt hann væri á leiðinni inn. Þetta hefði verið flott mark."

Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 1 Breiðablik
„Ég æfði aðeins með Breiðablik af því þeir eru líka uppeldisfélagið mitt en ég sá fram á betri tækifæri hér hjá Fylki. Ég mun reyna að gera eins mikið og ég get fyrir liðið og vonandi get ég skorað og lagt upp fyrir liðið."
Sagði Arnór um hvernig aðdragandinn að félagaskiptum sínum voru og hvernig tímabilið leggst í hann.
Athugasemdir