Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. júní 2020 18:26
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið FH og ÍA: Daníel Hafsteins byrjar fyrir FH
Óbreytt byrjunarlið hjá ÍA
Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir ÍA í fyrstu umferð.
Stefán Teitur Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir ÍA í fyrstu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steven Lennon setti þá einnig tvö mörk fyrir FH í fyrstu umferð.
Steven Lennon setti þá einnig tvö mörk fyrir FH í fyrstu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld klukkan 19:15 mun Helgi Mikael Jónasson rífa upp flautuna í Kaplakrika og flauta til leiks viðreign FH gegn ÍA í 2. umferð Pepsi Max-deildar karla.

Bæði þessi lið koma til leiks með sigur úr fyrstu umferð í farteskinu en FH áttu góða ferð inn í Kórinn þegar þeir höfðu betur gegn HK 3-2 á meðan ÍA bauð KA velkomna uppá Skaga með 3-1 sigri. Steven Lennon og Stefán Teitur Þórðarson skoruðu þá báðir tvö mörk í fyrstu umferð og eru því markahæstir sem stendur ásamt Valgeir Valgeirssyni leikmanni HK en eiga þennan leik inni til þess að komast uppfyrir undrabarnið úr HK.

FH gerir eina breytingu á liði sínu frá síðasta leik en Atli Guðnason dettur úr úr liðinu fyrir Daníel Hafsteinsson á meðan ÍA gerir engar breytingar á sínu byrjunarliði frá sigrinum gegn KA.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið FH 
1. Gunnar Nielsen (m) 
2. Hörður Ingi Gunnarsson 
5. Hjörtur Logi Valgarðsson 
6. Daníel Hafsteinsson
7. Steven Lennon 
8. Baldur Sigurðsson 
9. Jónatan Ingi Jónsson 
10. Björn Daníel Sverrisson (f) 
14. Morten Beck Guldsmed 
16. Guðmundur Kristjánsson 
21. Guðmann Þórisson 

Byrjunarlið ÍA: 
12. Árni Snær Ólafsson (m)(F) 
3. Óttar Bjarni Guðmundsson 
4. Aron Kristófer Lárusson 
6. Jón Gísli Eyland Gíslason 
7. Sindri Snær Magnússon 
9. Viktor Jónsson 
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson 
16. Brynjar Snær Pálsson 
18. Stefán Teitur Þórðarson 
19. Bjarki Steinn Bjarkason 
22. Steinar Þorsteinsson 

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner