sun 21. júní 2020 18:23
Egill Sigfússon
Byrjunarlið Fylkis og Breiðabliks: Guðjón Pétur byrjar
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir fær Breiðablik í heimsókn á Wurth völlinn í annari umferð Pepsí Max-deild karla í kvöld klukkan 19:15. Fylkir tapaði 2-1 gegn Stjörnunni í Garðabæ í fyrstu umferðinni þar sem Ólafur Ingi Skúlason fékk beint rautt spjald og er því í leikbanni hér í dag. Breiðablik vann hins vegar afar sannfærandi 3-0 sigur á nýliðum Gróttu á heimavelli.

Fylkismenn gera tvær breytingar á liði sínu frá tapinu í Garðabæ í síðustu umferð. Fyrirliðinn Ragnar Bragi Sveinsson er kinnbeinsbrotinn og svo fer Þórður Gunnar Hafþórsson á bekkinn. Hákon Ingi Jónsson og Birkir Eyþórsson byrja í stað þeirra.

Breiðablik gerir eina breytingu frá sigrinum á Gróttu í fyrstu umferðinni. Guðjón Pétur Lýðsson byrjar inn á í stað Olivers Sigurjónssonar.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
6. Sam Hewson
7. Daði Ólafsson
9. Hákon Ingi Jónsson
11. Valdimar Þór Ingimundarson
13. Arnór Gauti Ragnarsson
17. Birkir Eyþórsson
24. Djair Parfitt-Williams
28. Helgi Valur Daníelsson (f)

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Anton Ari Einarsson (m)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Gísli Eyjólfsson
25. Davíð Ingvarsson
30. Andri Rafn Yeoman
45. Brynjólfur Willumsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Athugasemdir
banner
banner
banner