Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United gerir aðeins eina breytingu á liði sínu fyrir leikinn gegn Sheffield United í dag en Joelinton kemur inn fyrir Dwight Gayle. Leikurinn hefst klukkan 13:00 og fer fram á St. James's Park.
Þrír mánuðir eru frá því að Newcastle spilaði síðasta í deildinni á meðan Sheffield United fékk tækifæri til að koma sínum mönnum í gang í markalausa jafnteflinu gegn Aston Villa á dögunum.
Newcastle gerir eina breytingu frá síðasta leik sem fór fram í mars á meðan Sheffield United gerir eina breytingu frá síðasta leik.
John Fleck kemur inn í liði Sheffield United, sem var rænt dýrmætu marki, á Villa Park fyrir helgi.
Byrjunarlið Newcastle: Dubravka, Maquillo, Fernandez, Lascelles, Rose, Hayden, Shelvey, Ritchie, Almiron, Saint-Maximin, Joelinton.
Byrjunarlið Sheffield Utd: Henderson, Baldock, Basham, Egan, Robinson, Stevens, Berge, Norwood, Fleck, McBurnie, Sharp
Athugasemdir