Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. júní 2020 17:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Aston Villa og Chelsea: Azpilicueta besti maður vallarins
Þakkað fyrir leikinn. Azpilicueta og Douglas Luiz, miðjumaður Aston Villa.
Þakkað fyrir leikinn. Azpilicueta og Douglas Luiz, miðjumaður Aston Villa.
Mynd: Getty Images
Chelsea kom til baka gegn Aston Villa þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni áðan. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Chelsea eftir að heimamenn í Aston Villa leiddu 1-0 í hálfleik.

Hér að neðan má sjá einkunnir Independent úr leiknum. Kortney House, markaskorari Aston Villa, fær hæstu einkunn heimamanna eða 7. Hjá Chelsea fá tveir leikmenn 8 og er það fyrirliðinn Cesar Azpilicueta, sem lagði upp bæði mörk Chelsea, sem er valinn maður leiksins.

Hérna má lesa umsagnir um frammistöðu leikmanna á vef Independent sem gefur öllum byrjunarliðsmönnum einkunn, sem og Christian Pulisic sem kom inn á sem varamaður og skoraði fyrir Chelsea.

Einkunnir Aston Villa: Nyland 6, Konsa 4, House 7, Mings 6, Targett 6, McGinn 5, Luiz 6, Hourihane 5, El Ghazi 6, Davis 6, Grealish 5.

Einkunnir Chelsea: Kepa 6, Azpilicueta 8, Christensen 5, Rudiger 5, Alonso 6, Kovacic 6, Kante 7, Mount 8, Willian 6, Giroud 7, Loftus-Cheek 5, Pulisic 7.
Athugasemdir
banner
banner