Lois Diony, framherji St. Etienne í Frakklandi, missir af bikarúrslitaleiknum gegn Paris Saint-Germain í næsta mánuði vegna meiðsla sem hann hlaut eftir að hafa dottið af hjólinu sínu.
Diony er 27 ára gamall framherji en hann hefur verið á mála hjá St. Etienne frá 2017.
Hann var lánaður til Bristol City árið 2018 en frammistaða hans þar var skelfileg og var hann á endanum sendur aftur heim til Frakklands.
Diony hefur hjálpað St. Etienne að komast í úrslitaleik franska bikarsins en liðið mætir Paris Saint-Germain í næsta mánuði. Hann verður að öllum líkindum ekki með eftir að hann fór í örlagaríka hjólaferð í fjöllum í grennd við St. Etienne.
Hann féll af hjólinu og meiddist illa en búist er við að hann verði frá í tæpa tvo mánuði.
Athugasemdir