banner
   sun 21. júní 2020 13:37
Brynjar Ingi Erluson
Kahn: Sane er samningsbundinn Man City til 2021
Leroy Sane hefur verið orðaður við Bayern
Leroy Sane hefur verið orðaður við Bayern
Mynd: Getty Images
Þýska félagið Bayern München verður að fara varlega á leikmannamarkaðnum í sumar en þetta segir Olvier Kahn, fyrrum markvörður félagsins og núverandi stjórnarmaður Bayern.

Bayern München fagnaði áttunda deildarmeistaratitlinum í röð á dögunum en félagið vill styrkja sig í sumar og er Leroy Sane talinn efstur á blaði.

Sane var í viðræðum við Bayern í ágúst á síðasta ári áður en hann meiddist illa.

Hann var í hópnum hjá City gegn Arsenal á dögunum en aðeins sólarhring síðar greindi Pep Guardiola, stjóri City, að Sane myndi ekki framlengja við félagið og væri á förum

Kahn segir þó að Bayern þurfi að fara varlega á markaðnum í sumar vegna áhrifa kórónaveirunnar.

„Hann á ár eftir af samningnum og það er ekkert hægt að segja um málið núna. Við munum ræða þessi mál þegar eitthvað gerist, það er að segja ef einhvejrar viðræður hafa átt sér stað. Þetta er tími þar sem félög þurfa að fara varlega og sérstaklega vegna efnahagsástandsins," sagði Kahn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner