sun 21. júní 2020 20:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Þetta var alvöru bardagi
Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp.
Mynd: Getty Images
„Þetta var alvöru bardagi," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir markalaust jafntefli gegn nágrönnunum í Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var ekki sá skemmtilegasti. Liverpool var miklu meira með boltann, en það var Everton sem fékk hættulegasta færið þegar Tom Davies átti skot í stöngina undir lok leiksins.

„Bæði lið sýndu að þau skilja að þetta var erkifjendaslagur. Allir leikmenn lögðu sig alla fram í verkefnið."

„Við fengum ekki nægilega mörg færi. Við vorum með yfirburði, en þeir fengu besta færi leiksins. Everton varðist mjög vel og við vorum ekki nægilega klókir til að nýta plássið. Það er eðlilegt þegar þú ert að byrja að spila aftur eftir langa pásu."

Liverpool getur mögulega tryggt sér titilinn með sigri á Crystal Palace næstkomandi miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner