Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 21. júní 2020 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndir: Hárið á Alex Frey vakti athygli
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hárgreiðslan á Alex Frey Elíssyni, leikmanni Fram, vakti athygli í gær.

Alex skartaði bláum kambi í gær og þar sem hann er leikmaður Fram þá smellpassar það við búning félagsins. Heimatreyja Fram-liðsins er alla jafna blá á litinn.

Fram atti kappi við Leikni F. í gær og sigraði 3-0. Alex lék fyrstu 69 mínúturnar í leiknum. Myndir af greiðslunni fylgja fréttinni.

Greiðslan kom til tals í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær: „Guð minn góður," sagði Tómas Þór Þórðarson.

„Af hverju erum við alltaf svo neikvæðir á þessar hárgreiðslur?" spurði Elvar Geir Magnússon.

„Þær þurfa að vera flottar. Er þetta ekki í ætt við [Brynjólf] Andersen?"
Útvarpsþátturinn - Enski boltinn, Pepsi Max og Lengjudeildin
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner