Þorsteinn Már Ragnarsson var maður leiksins í dag þegar Stjarnan vann Fjölni 1-4 á Extra-vellinum í dag. Þorsteinn var flottur í leiknum í dag með mark og stoðsendingu og gerði út um leikinn þegar hann skoraði þriðja mark Stjörnunar.
„Frábær seinni hálfleikur, sýndum karakter, fengum mark á okkur á leiðinlegum tíma í enda fyrri hálfleiks en bara frábær karakter að skora þrjú í seinni hálfleik," sagði Þorsteinn eftir leik.
Hvað sögðu Rúnar og Óli í hálfleik?
„Bara halda áfram, við vorum betri í fyrri hálfleik og bara já halda áfram því sem við vorum að gera, við bara héldum því plani og það uppskar þrjú mörk."

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 4 Stjarnan
Hvað fannst Þorsteini Stjarnan gera vel í seinni hálfleik?
„Bara klára færin, við vorum að ná góðu uppspili og einfaldlega náðum að klára færin, við náðum ekki að gera það í fyrri hálfleik"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir