Valur tapaði 2-0 fyrir Breiðablik í 4-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.
„Ég er frekar súr við ætluðum okkur að klára þennan leik og fara í úrslitaleikinn." Sagði Fanndís Friðriksdóttir
„Ég er frekar súr við ætluðum okkur að klára þennan leik og fara í úrslitaleikinn." Sagði Fanndís Friðriksdóttir
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Valur
Það vantaði meiri neista og baráttu í Valsliðið í dag og virtust Breiðablik hafa yfirhöndina á velinum en Fanndís var ekki sammála því.
„Hún kom í restina en þær skoruðu þetta mark sem var klaufalegt af okkar hálfu en eftir það fannst mér við taka yfir leikinn og vera með yfirhöndina. Þær bjuggu svo sem ekki mikið til í fyrri hálfleik en þær náðu að setja seinna markið inn og þá fannst mér aðeins slökkna á okkur."
Það vakti mikla athygli þegar að Fanndís ákvað að fara í Val eftir dvölina í Frakklandi en hún var í Breiðablik áður en hún fór út í atvinnumennskuna.
„Auðvita ég valdi það sjálf að skipta um lið en það er mjög gott að koma hingað eins og alltaf." Sagði Fanndís að lokum
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir