International Champions Cup æfingamótið er komið af stað þar sem nokkur af helstu félögum evrópskrar knattspyrnu mætast.
Í dag eru tveir leikir á dagskrá og verða þeir sýndir beint á Stöð 2 Sport 2.
Bayern München keppir við Paris Saint-Germain í fyrri leik dagsins. Liðin mætast í Austurríki.
Síðari leikurinn er æfingaleikur en er í raun ekki partur af keppninni sjálfri. Þar mætast Benfica og Sevilla.
Leikir dagsins:
14:00 FC Bayern - PSG (Stöð 2 Sport 2)
16:00 Benfica - Sevilla (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir