Magni 0 - 1 HK
0-1 Bjarni Gunnarsson ('36)
0-1 Bjarni Gunnarsson ('36)
HK endurheimti toppsæti Inkasso-deildarinnar með góðum sigri í Grenivík í dag.
Bjarni Gunnarsson gerði eina mark leiksins seint í fyrri hálfleik þegar HK-ingar voru með mikinn sóknarþunga í átt að marki heimamanna, sem björguðu á línu skömmu fyrir markið.
Bæði lið fengu góð færi en náðu ekki að koma knettinum í netið. Undir lok leiksins fékk Magni mjög gott færi til að ná sér í stig en nýtti ekki og 1-0 sigur HK niðurstaðan.
Magni er á botni deildarinnar með sex stig. Liðið sýndi þó góðar rispur í dag og þarf að byggja á því til að komast upp úr fallsæti.
Athugasemdir