Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 21. júlí 2018 17:04
Ívan Guðjón Baldursson
Kjartan Stefáns: Stjarnan keyrði yfir okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir steinlá á heimavelli er Stjarnan kíkti í heimsókn í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

Fylkir komst yfir snemma leiks en Stjarnan tók öll völd á vellinum og skoraði níu mörk.

„Stjarnan bara mætti gríðarlega ákveðin til leiks og keyrði yfir okkur. Það verður bara að segjast alveg eins og er," sagði Kjartan að leikslokum.

„Liðið okkar er mjög ungt, ég held það hafi verið sjö stelpur á 2. flokks aldri að byrja leikinn. Þær voru ákveðnar og lokuðu öllu en við eigum að geta gert betur varnarlega. Við vorum svolítið langt frá okkur sjálfum í dag."

Kjartan sættir sig við að betra liðið hafi unnið og er ánægður með tækifærið sem ungur leikmannahópur Fylkis fékk.

„Við höfðum trú fyrir þennan leik, við erum búin að sýna það í sumar. Við erum búin að spila við fullt af góðum liðum og sýnt góðan karakter en núna vorum við svolítið frá okkur.

„Margar stelpur hérna ungar og efnilegar sem fengu gott tækifæri. Þær fengu þennan leik í lærdóm, vonandi skilar þessi leikur okkur góðum lærdómi."

Athugasemdir
banner
banner