Rúnar Alex Rúnarsson þreytti frumraun sína fyrir franska úrvalsdeildarliðið Dijon í dag þegar hann byrjaði inn á gegn Sochaux í æfingaleik.
Rúnar hélt hreinu í leiknum en leikar enduðu með markalausu jafntefli.
Í kjölfar þess var vítaspyrnukeppni. Þar sigraði Sochaux 4-2.
Rúnar gekk til liðs við Dijon í sumar frá danska úrvalsdeildarfélaginu Nordsjælland eftir fjögurra ára dvöl hjá félaginu.
Hann var hluti af íslenska landsliðshópnum sem tók þátt á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar en kom þó ekkert við sögu.
Athugasemdir