Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. júlí 2020 23:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ferdinand: Annað hvort að fá Oblak eða treysta á de Gea
Mynd: Getty Images
Rio Ferdinand er á þeirri skoðun að Jan Oblak, markvörður Atletico Madrid, sé eini markvörðurinn í heiminum sem geti fyllt í skarð David de Gea ef Manchester United ákveður að skipta um markvörð.

Rio segir að Oblak muni kosta dágóðan skilding og gefur í skyn að United eigi að halda tryggð við de Gea.

Umræðan hefur verið hávær í kjölfar mistaka de Gea gegn Chelsea á sunnudag en David hefur átt upp og ofan tímabil með United.

„Hann hefur átt erfitt tímabil, sjálfstraustið er lágt en það þýðir ekki að það eigi að losa hann? Hvern ætlaru að fá?" sagði Ferdinand.

„Hver getur komið inn fyrir hann? Eini sem ég sé er Oblak en geturu keypt hann af Atletico? Hversu mikið mun hann kosta? Það verður risaupphæð og ég myndi halda í David því hann hefur unnið sér fyrir því að hann fái traustið," bætti Rio við.
Athugasemdir
banner
banner