Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 21. júlí 2020 20:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lampard: Hudson-Odoi þarf að sýna mér hvaða hæfileikar búa í honum
Mynd: Getty Images
Callum Hudson-Odoi er ekki alveg nógu sáttur með takmarkaðan spiltíma í liði Chelsea að undanförnu herma heimildir Sky Sports. Willian hefur spilað gífurlega vel á öðrum vængnum i liði Chelsea eftir Covid-hlé og þeir Christian Pulisic og Mason Mount hafa þá einnig verið á undan Hudson-Odoi í baráttunni um hinn vænginn.

Lampard segir Hudson-Odoi feykilega öflugan en hefur ekki áhyggjur af pirringi vængmanni síns. Aðrar heimildir segja að Hudson-Odoi sé mjög ánægður á Stamford Bridge.

„Hann verður að halda áfram að æfa á þessu getustigi sem ég hef séð að undanförnu," sagði Lampard aðspurður út í vængmanninn.

„Hann hefur komið inn á í síðustu leikjum og gert vel og hann þarf að halda áfram að sýna góðar frammistöur. Ég vil að hann sýni mér hvaða hæfileikar búa í honum," bætti Lampard við.




Athugasemdir
banner
banner
banner