Football365 setti saman topp tíu lista yfir leikmenn sem hafa tekið stór skref til baka síðan 2018. Umræðan um David de Gea vakti hugmyndir um að gera listann og spænski markvörðurinn trónir á toppi hans.
10) Sergej Milinkovic-Savic - Leikmaður Lazio var um tíma einn umtalaðasti leikmaður Evrópu en hlutabréfin hafa hrapað mikið.
9) Dele Alli - Þessi hæfileikaríki miðjumaður Tottenham hefur ekki náð að finna almennilegan stöðugleika en meiðsli hafa haft áhrif.
8) Alexis Sanchez - Stuðningsmenn Manchester United voru mjög spenntir þegar Sanchez var fenginn en ekkert hefur gengið hjá honum síðan.
7) Samuel Umtiti - Erfið hnémeiðsli hafa átt þátt í því að Umtiti hefur ekki náð að sýna það sem vonast var eftir hjá Barcelona.
5) Isco - Þessi leikmaður Real Madrid er alls ekki að skila því sama og hann gerði fyrir nokkrum árum.
4) Philippe Coutinho - Elti drauminn til Barcelona en draumurinn varð að martröð og leikgleðin virðist horfin.
3) Mesut Özil - Það efast enginn um hæfileikana en hugarfarið hefur orðið til þess að Özil skorar hátt á þessum lista.
Athugasemdir