Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. júlí 2022 20:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Blikar orðnir tveimur mönnum fleiri - „Hvað er að gerast hérna?"
Jason Daði Svanþórsson
Jason Daði Svanþórsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru ótrúlegir hlutir að gerast á Kópavogsvelli þar sem Breiðablik og Buducnost Podgorica eigast við í Sambandsdeildinni. Staðan er markalaus þegar um það bil korter er eftir af leiknum.

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 -  0 Buducnost

Það hlítur þó að vera að Breiðablik komist yfir því þeir eru orðnir tveimur fleiri.

Andrija Raznatovic fékk rautt spjald fyrir að slá Jason Daða í andlitið snemma í síðari hálfleik. á 70. mínútu fengu Svartfellingarnir annað rautt spjald þegar Luka Mirkovic tæklaði Jason Daða.

„HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA????? Viðurkenni eg missti af fyrra gula spjaldinu og skráði það ekki niður en ég bara skil ekki hvað Mirkovic var að gera þarna.... á gulu spjaldi og fer bara með takkana í maga-hæð á Jasoni Daða. Rosalega taktlaust og rétt dæmt." Skrifaði Arnar Laufdal í textalýsingu leiksins á Fótbolta.net.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner