Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. júlí 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brighton vill 50 milljónir punda fyrir Cucurella
Mynd: Getty Images
Oleksandr Zinchenko er á leið frá Manchester City til Arsenal en þá er Joao Cancelo eini vinstri bakvörðurinn í aðalliði City.

Marc Cucurella leikmaður Brighton er sagður vera undir smá sjá City en talið er að félögin séu í viðræðum um leikmanninn.

Samkvæmt heimildum ESPN hefur City boðið 30 milljónir punda í leikmanninn en Brighton er ekki tilbúið að selja hann fyrir minna en 50 milljónir punda.

Hann gekk til liðs við Brighton fyrir síðasta tímabil á 15 milljónir punda frá Getafe.


Athugasemdir
banner
banner
banner