„Ég vil þakka markmanninum mínum fyrir að það hafi ekki farið 15-0," sagði Brynjar Þór Gestsson þjálfari Þróttar Vogum eftir 6-0 tap gegn Fjölni í Lengjudeild karla.
Þín fyrstu viðbrögð eftir 6-0 tap?
„ Við skulum byrja á afsökunum. VIð vorum fámennir í dag, þrír í banni og tveir meiddir. Þriðji leikurinn á sjö dögum."
Lestu um leikinn: Fjölnir 6 - 0 Þróttur V.
„Við vorum bara eins og fávitar, allir sem einn. Við gátum ekki rassgat, við vitum það. Þeir sem komu inn í liðið í dag þurfa að nýta tækifærið betur."
Næsti leikur gegn Vestra úti?
„Já og við ætlum að vinna hann."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir