Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 21. júlí 2022 10:17
Elvar Geir Magnússon
Lazio í viðræðum við Marcelo
Mynd: EPA
Ítalskir fjölmiðlar segja að Marcelo, fyrrum leikmaður Real Madrid, gæti mögulega farið til Lazio.

Lazio á í viðræðum við þennan 34 ára brasilíska bakvörð sem er fáanlegur á frjálsri sölu.

La Gazzetta dello Sport segir að Marcelo hafi mikinn áhuga á að ganga í raðir ítalska félagsins og spila undir stjórn Maurizio Sarri.

Sagt er að forráðamenn Lazio séu þó með áhyggjur af líkamlegu ástandi Brassans en hann spilaði aðeins fimm byrjunarliðsleiki í La Liga á síðasta tímabili.

Vöðvameiðsli og meiðsli í kálfa héldu hinum auk þess á meiðslalistanum um tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner