„Ég myndi segja að þetta hafi verið skemmtilegt fyrir áhorfendur. Við höfum komið hingað tvisvar í júlí undanfarin ár og þá var dramatík á lokamínútunum þá og nóg af mörkum og fjöri en þessi leikur toppaði allt og ég held að þetta hafi verið skemmtilegasti leikurinn í Lengjudeildinni í sumar.“ Sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar um fjörið þegar Afturelding lagði Grindavík 5-4 í ótrúlegum fótboltaleik í Grindavík fyrr í kvöld
Lestu um leikinn: Grindavík 4 - 5 Afturelding
Gestirnir úr Mosfellsbæ náðu forystunni mjög snemma leiks en gengu þó til búningsherbergja marki undir 2-1 eftir að Grindavík skoraði tvívegis annarsvegar eftir stundarfjórðung og hinsvegar undir lok fyrri hálfleiks. Gestirnir hófu þó síðari hálfleikinn af krafti og höfðu endurheimt forystu sína eftir aðeins rúmlega sjö mínútna leik með tveimur mörkum á tveimur mínútum í kringum 50.mínútu leiksins
„Vandamálið var ekki að féllum eitthvað aftarlega þegar við komumst yfir. Við bara hættum að spila. Vorum ekki on it og vorum heppnir að fá ekki á okkur fleiri mörk í fyrri hálfleik. Við fórum aðeins yfir hlutina í háfleik og náðum að byrja seinni hálfleik af krafti og gerðum það vel en svo var algjör óþarfi að láta þá jafna ég veit ekki hvað oft ég var búinn að missa töluna á þessu. “
Stigin þrjú og mörkin fimm það sem vekja ánægju hjá Magnúsi en hvað með varnarleikinn?
„Grindavík hefði hæglega getað skorað fleiri mörk þannig að ég er alls ekki ánægður með varnarleikinn og þetta er úr karakter hjá okkur. Við höfum verið góðir varnarlega í sumar og ekki oft fengið á okkur fleiri en eitt mark í leik en sóknarlega vorum við frábærir og skorum fimm mörk.“
Allt viðtalið við Magnús má sjá hér að ofan.
Athugasemdir