Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 21. ágúst 2019 20:13
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Öruggt hjá Vestra - Sveinn Margeir skoraði tvö á Dalvíkurvelli
Sveinn Margeir Hauksson skoraði bæði mörk Dalvíkur/Reynis
Sveinn Margeir Hauksson skoraði bæði mörk Dalvíkur/Reynis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikir voru að klárast í 2. deild karla en Vestri vann ÍR 3-0 á meðan Dalvík/Reynir vann góðan 3-1 sigur á Völsungi.

Þórður Gunnar Hafþórsson gerði tvö mörk fyrir Vestra á meðan Isaac Freitas Da Silva gerði eitt en Vestri er í baráttu um að komast upp um deild og er nú í 2. sæti með 33 stig, stigi á eftir Leikni F.

Dalvík/Reynir vann þá Völsung 3-1. Sveinn Margeir Hauksson skoraði tvö fyrir heimamenn áður en Borja Lopez bætti við þriðja markinu. Gestirnir minnkuðu muninn undir lokin.

Víðir og Kári gerðu þá 2-2 jafntefli. Eggert Kári Karlsson skoraði bæði mörk Kára en Víðismenn léku manni færri allan síðari hálfleikinn. Það var einmitt þá sem þeir tóku við sér og skoruðu tvö mörk, síðara markið tíu mínútum fyrir leikslok.

Víðir er enn í baráttu um að komast upp en liðið er í 4. sæti með 29 stig.

Úrslit og markaskorarar:

ÍR 0 - 3 Vestri
0-1 Þórður Gunnar Hafþórsson ('19 )
0-2 Isaac Freitas Da Silva ('42 )
0-3 Þórður Gunnar Hafþórsson ('89 )

Dalvík/Reynir 3 - 1 Völsungur
1-0 Sveinn Margeir Hauksson ('13 )
2-0 Sveinn Margeir Hauksson ('44 )
3-0 Borja Lopez ('67 )
3-1 Markaskorara vantar ('86 )

Víðir 2 - 2 Kári
0-1 Eggert Kári Karlsson ('34 )
0-2 Eggert Kári Karlsson ('47 )
1-2 Markaskorara vantar ('49 )
2-2 Markaskorara vantar ('79 )
Athugasemdir
banner
banner