Ítölsku félögin Juventus og Roma eiga nú í viðræðum um Daniele Rugani en Juventus mun að öllum líkindum lána hann út tímabilið.
Rugani er 25 ára gamall en hann er uppalinn hjá Empoli. Juventus fékk hann á láni frá félaginu áður en hann var keyptur.
Hann hefur leikið 87 leiki og skoraði 7 mörk fyrir liðið en virðist nú á leið til Roma.
Juventus vill 20-25 milljónir evra auk þess sem það vill tvo leikmenn úr unglingaliði félagsins.
Roma mun að öllum líkindum ganga að því en Rugani verður lánaður út tímabilið mun Roma svo þurfa að leggja út fyrir honum næsta sumar.
Athugasemdir