Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 21. ágúst 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldo: Kannski hætti ég á næsta ári
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, segist ekki hafa tekið neina ákvörðun um það hvenær hann leggur skóna á hilluna frægu.

Ronaldo er 34 ára en hann segist geta hætt eftir ár eða þegar hann verður 41 árs.

„Ég hugsa ekki um það," sagði Ronaldo í viðtali í Portúgal aðspurður hvenær hann ætlar að leggja skóna á hilluna.

„Kannski get ég hætt á næsta ári... en ég gæti líka spilað þar til ég verð 40 eða 41 árs."

„Ég veit ekki. Það sem ég segi alltaf er að njóta augnabliksins. Þessi gjöf sem ég hef fengið er stórkostleg og ég þarf að halda áfram að njóta hennar."

Athugasemdir
banner
banner
banner