Það var nóg af mörkum í boði í 4. deild karla í kvöld en tveir leikir fóru fram í B og D riðli.
Smári vann lið KFB sannfærandi í B riðli þar sem Viktor Rivin Óttarsson skoraði þrennu fyrir það fyrrnefnda.
Smári er í sjötta sæti deildarinnar með 17 stig en KFB er í því áttunda með aðeins níu stig.
Hvíti Riddarinn vann einnig sannfærandi sigur í D rIðlinum gegn KB og skoraði Haukur Hall Eyþórsson þrennu í þeim leik.
Hvíti Riddarinn vann leikinn með sex mörkum gegn tveimur og er í þriðja sæti með 28 stig. KB situr í sjöunda sæti með aðeins sex.
Smári 5 - 1 KFB
1-0 Viktor Rivin Óttarsson('3)
2-0 Sverrir Haukur Gíslason('21)
3-0 Einar Fannar Valsson('30)
4-0 Viktor Rivin Óttarsson('40)
5-0 Viktor Rivin Óttarsson('46)
5-1 Skarphéðinn Haukur Lýðsson('73)
Hvíti Riddarinn 6 - 2 KB
0-1 Kristján Hermann Þorkelsson('20)
1-1 Haukur Hall Eyþórsson('25)
2-1 Haukur Hall Eyþórsson('29)
3-1 Ayyoub Anes Anbari('45)
4-1 Haukur Hall Eyþórsson('53)
5-1 Eiður Andri Thorarensen('56)
6-1 Eiríkur Þór Bjarkason('71)
6-2 Sebastian Miastkowski('85)
Athugasemdir