Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. ágúst 2021 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bjarni Mark lék í sex marka jafntefli - Stromsgodset vann
Aron Elís Þrándarson
Aron Elís Þrándarson
Mynd: Getty Images
Jökull Andrésson var í byrjunarliði Morecambe sem tapaði 2-1 gegn Gillingham á útivelli í League One á Englandi í dag.

Aron Elís Þrándarson var í byrjunarliði OB sem gerði 2-2 jafntefli gegn Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni. Bröndby var með tveggja marka forystu í hálfleik en OB minnkaði muninn í upphafi síðari hálfleiks. Aroni var skipt af velli á 83. mínútu og aðeins mínútu síðar jafnaði OB.

Bjarni Mark Antonsson kom inná sem varamaður á 71. mínútu hjá Brage í 3-3 jafntefli liðsins gegn Vasteras í sænsku úrvalsdeildinni. Í Noregi vann Stromsgodset 3-1 sigur á Brann. Ari Leifsson lék allan leikinn hjá Stromsgodset en Valdimar Ingimundarson sat allan tíman á varamannabekknum.

Elías Már Ómarsson var ekki í leikmannahópi Nimes sem vann 2-0 sigur á Dunkerque í næst efstu deild í Frakklandi. Hann tognaði á æfingu og það kemur betur í ljós í vikunni hversu alvarleg meiðslin eru.
Athugasemdir
banner
banner