Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 21. ágúst 2021 10:37
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Liverpool og Burnley: Henderson á miðjunni - Jói Berg byrjar
Jordan Henderson byrjar hjá Liverpool
Jordan Henderson byrjar hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Liverpool og Burnley eigast við í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Anfield í dag en Jordan Henderson og Harvey Elliott eru báðir í byrjunarliði heimamanna. Leikurinn hefst klukkan 11:30.

Henderson hefur verið að koma sér í hlutina eftir að hafa spilað með Englendingum á Evrópumótinu en hann er klár í slaginn í dag. James Milner er ekki með vegna smávægilegra meiðsla.

Hinn ungi og efnilegi Harvey Elliott fær þá tækifærið í liðinu en Sadio Mane, Mohamed Salah og Diogo Jota leiða framlínuna.

Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er þá í byrjunarliði Burnley.

Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Matip, Van Dijk, Tsimikas, Henderson, Keita, Elliott, Mane, Salah, Jota.

Burnley: Pope, Lowton, Tarkowski, Mee, Taylor, Gudmundsson, Brownhill, Cork, McNeil, Wood, Barnes.
Athugasemdir
banner
banner