Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. ágúst 2021 14:03
Brynjar Ingi Erluson
Championship: QPR kom til baka og náði í stig
Charlie Austin fagnar jöfnunarmarkinu í dag
Charlie Austin fagnar jöfnunarmarkinu í dag
Mynd: Getty Images
QPR 2 - 2 Barnsley
0-1 Dominik Frieser ('14 )
0-2 Cauley Woodrow ('27 )
1-2 Ilias Chair ('76 )
2-2 Charlie Austin ('90 )

QPR átti góða endurkomu gegn Barnsley í ensku B-deildinni í dag en leiknum lauk með 2-2 jafntefli.

Dominik Frieser og Cauley Woodrow komu Barnsley yfir á fyrstu 27 mínútum leiksins og allt útlit fyrir að liðið myndi hafa sigur.

Þegar fjórtán mínútur voru eftir minnkaði Ilias Chair muninn fyrir QPR og þá skoraði Charlie Austin jöfnunarmarkið í blálokin.

QPR er á toppnum með 8 stig eftir fyrstu fjóra leikina og hefur ekki enn tapað leik en Barnsley er í 10. sæti með 5 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner