Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 21. ágúst 2021 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í fyrsta sinn á öldinni sem leikmenn bera treyjunúmer frá 1-11
Mynd: EPA
Liverpool fékk Burnley í heimsókn í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Liverpool vann með tveimur mörkum gegn engu. Diogo Jota kom liðinu yfir eftir fyrirgjöf frá Kostas Tsimikas en Sadio Mane bætti öðru markinu við.

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley en honum var skipt af velli á 79. mínútu.

Það vakti athygli að í byrjunarliði Burnley voru leikmenn liðsins með númer aftan á treyjunum sínum frá 1-11 en það er í fyrsta sinn sem það gerist frá tímabilinu 1998-1999.


Athugasemdir
banner
banner
banner