lau 21. ágúst 2021 20:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Atalanta með dramatískan sigur - Lazio vann
Ciro Immobile
Ciro Immobile
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram kl 18:45 í kvöld í fyrstu umferð ítölsku Serie A deildarinnar. Lazio heimsótti Empoli og Torino fékk Atalanta í heimsókn.

Lazio hafði betur gegn Empoli en heimamenn náðu þó forystunni strax á fjórðu mínútu. Milinkovic-Savic jafnaði aðeins tveimur mínútum síðar. Manuel Lazzari kom Lazio yfir á 31. mínútu og 10 mínútum síðar gerði Ciro Immobile út um leikinn með marki úr vítaspyrnu.

Atalanta vann dramatískan sigur á Torino. Leiknum lauk 2-1 en Atalanta komst yfir strax á 6. mínútu. Andrea Belotti jafnaði fyrir Torino á 79. mínutu.

Það stefndi allt í jafntefli en Roberto Piccoli skoraði sigurmark fyrir Atalanta þegar þrjár mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma.

Empoli 1 - 3 Lazio
1-0 Filippo Bandinelli ('4 )
1-1 Sergej Milinkovic-Savic ('6 )
1-2 Manuel Lazzari ('31 )
1-3 Ciro Immobile ('41 , víti)

Torino 1 - 2 Atalanta
0-1 Luis Muriel ('6 )
1-1 Andrea Belotti ('79 )
1-2 Roberto Piccoli ('90)

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner