Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 21. ágúst 2021 12:01
Brynjar Ingi Erluson
Michael Jordan búinn að græða 7 milljónir dollara á sölu Messi treyja
Lionel Messi með treyjuna
Lionel Messi með treyjuna
Mynd: Getty Images
Fyrrum körfuboltamaðurinn Michael Jordan er búinn að græða 7 milljónir dollara á félagaskiptum Lionel Messi til Paris Saint-Germain en Insider greinir frá þessu.

Messi gerði tveggja ára samning við PSG á dögunum en hann kom á frjálsri sölu frá Barcelona.

150 þúsund treyjur seldust á fyrstu sjö mínútunum og er gróði PSG nú kominn í 140 milljónir dollara.

Michael Jordan fær 7 milljónir dollara í vasann en hann fær fimm prósent af sölu á öllum varning sem er merktur Air Jordan.

PSG gerði samning við Nike fyrir þremur árum um að klæðast Air Jordan-treyjum en samningurinn gildir til ársins 2022.


Athugasemdir
banner