Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. ágúst 2021 09:00
Victor Pálsson
Tottenham að fá efnilegan leikmann Metz
Levy kann að semja.
Levy kann að semja.
Mynd: EPA
Tottenham er nálægt því að tryggja sér 18 ára gamlan miðjumann sem ber nafnioð Pape Mate Sarr.

Sky Sports greinir frá þessu en Sarr er afar efnilegur og leikur með Metz í frönsku úrvalsdeildinni.

Sarr skrifar undir sex ára samning við Tottenham en verður lánaður aftur til Frakklands á þessari leiktíð.

Leikmaðurinn er búinn að funda með Daniel Levy, eiganda Tottenham, og voru þeir ekki lengi að ná saman.

Sarr á að baki 26 leiki fyrir Metz þrátt fyrir ungan aldur.
Athugasemdir
banner
banner