Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 21. ágúst 2021 20:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Verður Kane með Tottenham á morgun?
Mynd: EPA
Tottenham heimsækir Wolves í Ensku Úrvalsdeildinni á morgun.

Tottenham byrjaði tímabilið af krafti en liðið sigraði Manchester City 1-0 með marki frá Heung Min Son í fyrstu umferð um síðustu helgi.

Það hefur verið mikið líf í kringum Harry Kane framherja Tottenham uppá síðkastið. Hann er sagður vilja fara frá félaginu og þá til Manchester City.

Hann mætti ekki á fyrstu æfingu liðsins og var ekki í hóp gegn City og var jafnvel talið að hann myndi vera orðinn leikmaður City í liðinni viku. Svo var ekki og nú eru fréttir um að hann hafi ferðast með Tottenham í leikinn gegn Wolves á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner