Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. september 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Schalke tekur á móti Bayern
Mynd: Getty Images
Þýska helgin fer af stað strax í kvöld þegar Stuttgart tekur á móti nýliðum Düsseldorf. Stuttgart er aðeins með eitt stig eftir þrjár umferðir á meðan nýliðarnir eru komnir með fjögur eftir óvæntan sigur gegn Hoffenheim um síðustu helgi.

Engar líkur eru á því að Alfreð Finnbogason og Aron Jóhannsson mætist er Augsburg tekur á móti Werder Bremen á morgun. Alfreð er tæpur vegna hnémeiðsla og er Aron meiddur á ökkla.

Á sama tíma á Hoffenheim stórleik við Borussia Dortmund en stærsti leikur helgarinnar hefst þar á eftir, þegar Schalke fær topplið FC Bayern í heimsókn frá München.

Bayer Leverkusen tekur á móti Mainz á sunnudaginn áður en Eintracht Frankfurt mætir RB Leipzig í síðasta leik helgarinnar.

Föstudagur:
18:30 Stuttgart - Dusseldorf

Laugardagur:
13:30 Augsburg - Werder Bremen
13:30 Hertha Berlin - B. M'Gladbach
13:30 Hoffenheim - Dortmund
13:30 Nurnberg - Hannover
13:30 Wolfsburg - Freiburg
16:30 Schalke - FC Bayern

Sunnudagur:
13:30 Leverkusen - Mainz
16:00 Frankfurt - RB Leipzig
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 29 25 4 0 74 19 +55 79
2 Bayern 29 20 3 6 82 36 +46 63
3 Stuttgart 29 20 3 6 67 34 +33 63
4 RB Leipzig 29 17 5 7 67 33 +34 56
5 Dortmund 29 16 8 5 57 34 +23 56
6 Eintracht Frankfurt 29 10 12 7 43 39 +4 42
7 Augsburg 29 10 9 10 47 46 +1 39
8 Freiburg 29 11 6 12 41 52 -11 39
9 Hoffenheim 29 10 6 13 49 57 -8 36
10 Heidenheim 29 8 10 11 42 50 -8 34
11 Gladbach 29 7 10 12 50 56 -6 31
12 Werder 29 8 7 14 36 49 -13 31
13 Union Berlin 29 8 5 16 25 45 -20 29
14 Wolfsburg 29 7 7 15 34 50 -16 28
15 Bochum 29 5 12 12 34 59 -25 27
16 Mainz 29 5 11 13 30 47 -17 26
17 Köln 29 4 10 15 23 51 -28 22
18 Darmstadt 29 2 8 19 28 72 -44 14
Athugasemdir
banner
banner
banner