Ítalíumeistarar Juventus lentu undir gegn nýliðunum frá Verona er liðin mættust á Allianz Stadium.
Gestirnir fengu vítaspyrnu og steig Samuel Di Carmine á punktinn en skot hans fór í stöngina og út í teig. Þar fylgdi samherji hans eftir með þrumuskoti í slánna og skaust boltinn úr teignum.
Nokkrum sekúndum síðar skoppaði boltinn þægilega fyrir Miguel Veloso sem er frægur fyrir að vera með góðan vinstri fót. Veloso sýndi hvers hann er megnugur og smellhitti boltann í samskeytin.
Sjón er sögu ríkari og er hægt að sjá þetta ævintýralega mark með að smella hér.
Athugasemdir